Opnað hefur verið fyrir utankjörfundaratkvæði um sameiningu Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar!

Opnað hefur verið fyrir utankjörfundaratkvæði og hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt og í sendiráðum erlendis um sameiningu Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður einnig möguleg á skrifstofum sveitarfélaganna síðustu 2 vikur fyrir kjördag á opnunartíma.

Í sameiningarkosningum eiga námsmenn sem búsettir eru á Norðurlöndunum rétt á því að vera teknir á kjörskrá en þeir þurfa að sækja sérstaklega um það hjá Þjóðskrá Íslands á þar til gerðu eyðublaði (K-101) ásamt því að skila inn staðfestingu á námsvist. Hægt er að kjósa í sendiráðum Íslands í viðkomandi landi.